Greiðslutækni í seilingarfjarlægð: Hvað er að breytast og hvað kemur næst?
mán., 05. okt.
|Fantasía, Vinnustofa Kjarvals
Greiðslur og greiðslutækni þróast ört. Ný tækni, nýir greiðslumátar og nýjar leiðir til að færa og nota peninga eru þegar farnir að móta greiðsluumhverfið og þróunin heldur áfram.


Time & Location
05. okt. 2026, 17:00 – 19:00
Fantasía, Vinnustofa Kjarvals, Austurstræti 10a, 101 Reykjavík, Ísland
About the event
Á þessum fyrsta opna fundi greiðslutæknihóps Reykjavík Fintech fáum við þrjú ólík sjónarhorn á þróunina í greiðslutækni.
Gísli Kristjánsson hjá Monerium ræðir um sinn heim stafræns fjár og rafeyristóka, hvað er að gerast þar í dag og hvaða tækifæri og breytingar eru fram undan.
Bjarni Gaukur Sigurðsson hjá Blikk ræðir um A2A og greiðslur beint af bankareikningi, þróunina á íslenskum greiðslumarkaði og hvað er fram undan í þeirra heimi.
Ragnar Árnason hjá YAY kemur með annað sjónarhorn á greiðslur og verðmæti; stafrænar gjafir, gjafakort og lausnir í kringum þau og hvernig sá heimur er að þróast.
Jónína Gunnarsdóttir, sem leiðir greiðslutæknihóp Reykjavík Fintech, opnar fundinn og fer jafnframt yfir hvernig starfi hópsins verður háttað í vetur.
Markmiðið er að fá innsýn í ólíka hluta greiðsluheimsins, kynnast lausnum sem eru þegar orðnar að veruleika og velta fyrir okkur því sem er rétt handan við hornið.
