KORTLAGNING FJÁRTÆKNI Á ÍSLANDI
Ný skýrsla um fjártækni á Íslandi
Ný yfirlitsskýrlsa um íslenska fjártækni er komin út og var fyrst kynnt á SFF deginum 2026 þann 15. apríl. Skýrslan var unnin af Northstack fyrir Íslandsstofu og Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu en Reykjavik Fintech komu einnig að útgáfunni. Skýrslan ber yfirskriftina Fintech Iceland 2026: An ecosystem review and map.
Skýrslan dregur upp mynd af íslenskri fjártækni eins og húnlítur út í dag sem öflugum og vaxandi geira sem hefur skapað sér sérstöðu bæði hér á landi og á Norðurlöndunum. Sem dæmi eru flest fjártæknifyrirtæki hér á landi á hvern íbúa af öllum Norðurlöndunum.
Nálgast má samantekt á efni skýrslunnar á íslensku hér.

Northstack og Fjártækniklasinn unnu skýrslu um fjártækniumhverfið á Íslandi í febrúar 2020, með stuðningi SFF, Samtaka Fjármálafyrirtækja. Hana má sækja hér á pdf-formi.
KORTLAGNING FJÁRTÆKNI Á NORÐURLÖNDUM
.png)
Copenhagen Fintech og PA Consulting gáfu út skýrslu um helstu stefnur og straumar í fjártækni á Norðurlöndum í samvinnu við fjártækniklasa Íslands, Svíðþjóðar, Noregs og FInnlands. Skýrslan kom út í júní 2022 og hana má sækja hér á pdf-formi.
Copenhagen Fintech og EY gáfu út skýrslu um tækifæri í fjártækni fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Skýrslan kom út í mars 2022 og inniheldur meðal annars kortlagningu fjártæknifélaga á Norðurlöndunum. Skýrslan var unnin í samvinnu við Fjártækniklasann, NCE Finance Innovation, Findec, Helsinki Fintech Farm og Invest Stockholm. Hana má sækja hér á pdf-formi.


Findexable og Fintech Mundi gáfu út skýrslu um fjártækni á Norðurlöndum og í Eystrasaltslöndunum í desember 2020, en löndin telja um 2% af fólksfjölda Evrópu en þar má þó finna um 1000 fjártæknifyrirtæki. Skýrsluna má sækja hér á pdf-formi.
Copenhagen Fintech og Implement Consulting Group gáfu út skýrslu um fjártækni á Norðurlöndunum í september 2020, með áherslu á heimsmarkmið Sameinuðu Þjóðanna. Skýrslan var unnin í samvinnu við Fjártækniklasann, NCE Finance Innovation og The Factory í Noregi, Findec í Svíþjóð og Helsinki Fintech Farm í Finnlandi. Hana má sækja hér á pdf-formi.


