top of page

SAMFÉLAG UM FRAMFARIR Í FJÁRTÆKNI

Tilgangur Reykjavík Fintech (Fjártækniklasans) er að efla nýsköpun í fjármálum og gera viðskipti af öllu tagi auðveldari og betri. Hann er samfélag þeirra sem starfa við fjártækni og vilja stuðla að aukinni verðmætasköpun, samkeppni og bættum lífskjörum.

Við stöndum fyrir margvíslegu starfi auk þess að reka nýsköpunarsetur í samvinnu við Regus, m.a. í glæsilegu húsnæði á 2. hæð á Köllunarklettsvegi 1.

K1.webp
Heim: Welcome

STARF REYKJAVÍK FINTECH

Reykjavík Fintech stendur fyrir viðburðum, svo sem fundum um margvísleg svið fjártækni, kynningar á nýsköpunarfyrirtækjum, fyrirtækjastefnumót og fögnuði af ýmsu tagi. Klasinn vinnur einnig að framgangi fjártækni á allan hátt, svo sem með tengingum við erlend fyrirtæki og klasa, tengingu á milli mögulegra samstarfsaðila og ýmiskonar sérverkefnum.

Aðilar Reykjavík Fintech mynda saman samfélag sem allt nýtur góðs af, t.a.m. við þekkingaröflun, þróunarstarf og markaðsstarf. Reykjavík Fintech er ekki vettvangur fyrir innbyrðis samstarf banka og annarra slíkra fyrirtækja sem keppa sín á milli á markaði.

AÐILD

Aðilar að Reykjavík Fintech taka þátt í margvíslegu starfi hans og halda þannig sambandi við allt það helsta sem er að gerast hverju sinni í fjártækni á Íslandi, með það að markmiði að finna þær leiðir sem heillavænlegastar eru hverju sinni, auk þess að stofna til samstarfs við aðra aðila.

NÝSKÖPUNARSETUR

Nýsköpunarsetur Reykjavík Fintech er hjarta starfseminnar. Þar eru ung fyrirtæki og aðrir aðilar með aðstöðu og skapa þar í samfélagi sínu vistkerfi nýsköpunar, þar sem allir þátttakendur njóta góðs af, bæði fyrirtækin sem þar eru stödd, sem og aðrir aðilar Reykjavík Fintech. Nýsköpunarsetrið er rekið í samvinnu við Regus og eru höfuðstöðvarnar á Köllunarklettsvegi 1, en einnig er hægt að vera á öðrum skrifstofum á höfuðborgarsvæðinu, sem og að fá aðstöðu víða um heim.

B_41442 - Copy.jpg
Heim: Workspaces

Vilt þú vera á frumkvöðlalista?

Ert þú frumkvöðull eða langar þig að stofna þitt eigið fyrirtæki? Ert þú manneskja sem fær góðar hugmyndir og langar að prófa að vinna með öðrum frumkvöðlum? Eða er fyrirtækið þitt að leita að nýjum áskorunum og tækifærum?

Þá viljum við í Reykjavík Fintech vita af þér!

Skráðu þig á lista yfir frumkvöðla og teymi sem hefðu áhuga á að taka þátt í spennandi verkefnum eða þróa lausnir sem þörf er á.

Skráðu þig hér:

Takk fyrir að skrá þig!

Viðburðir

Heim: Events

TEYMIÐ

asgeir-mynd-1.jpeg

ÁSGEIR THEODÓR JÓHANNESSON

Framkvæmdastjóri

Gunnlaugur minni.jpeg

GUNNLAUGUR JÓNSSON

Stjórnarformaður

Heim: Team Members

HAFÐU SAMBAND

Við bjóðum upp á heimsóknir í nýsköpunarsetur Reykjavík Fintech fyrir hópa eða einstaklinga. Hafir þú áhuga á að koma í heimsókn er hægt að hafa samband við info@fjartaekniklasinn.is

Viljir þú fræðast á einhvern hátt um starf Reykjavík Fintech, hvort sem það er til þess að gerast aðili eða finna hentuga aðstöðu í klasanum, skaltu endilega hafa samband.

Köllunarklettsvegur 1, 2. hæð

104 Reykjavík
Iceland

  • facebook
  • linkedin
Heim: Contact
  • facebook
  • linkedin

© 2025 by Reykjavík Fintech ehf.

bottom of page